Í tilefni af Norræna skjaladeginum sem
haldinn er árlega,
annan laugardag í nóvember, nú
13. Nóvember.
Þetta
árið erum við með þemað bændamenning/sveitalíf, höfum við á
Héraðsskjalasafni Austur-Húnvetninga ákveðið að fjalla um
gangnamannaskála á Grímstungu- og Haukagilsheiðum.
Auglýsing
Héraðsskjalasafn Austur Húnavatnssýslu óskar
eftir að ráða starfsmann í samstarfi við Héraðsbókasafn Austur
Húnavatnssýslu
Um er að ræða fjölbreytt starf sem tengjast
flest skjalamálum og skjalavinnslu undir leiðsögn héraðsskjalavarðar, en
einnig afgreiðslu á bókasafni.
Héraðsskjalasafn Austur Húnavatnssýslu fékk til varðveislu og eignar, safn ættrakningar Guðmundar Paul Jónssonar, á rafrænu formi.
Safn þetta nær yfir 160 þúsund einstaklinga, víða á
landinu og inniheldur mikið magn miðaldarakninga í Evrópu. Byrjað var að
skrá á tölvutækt form árið 1990.
Vill héraðsskjalavörður þakka Guðmundi fyrir svo
höfðinglega gjöf, sem á eftir að koma næstu kynslóðum til góða við leit
að forfeðrum sínum.
Safnið verður lokað í óákveðinn tíma vegna kórónaveirunnar, en starfsfólk mun vinna að heiman eins og hægt er......
Frétt frá Héraðsskjalasafni Austur Húnavatnssýslu
Tekið hefur verið upp skráningarkerfi hjá Héraðsskjalasafni Austur Húnavatnssýslu sem heitir AtoM. Nú þegar hafa verið skráðar um 80 afhendingar og tæplega 10 þúsund ljósmyndir af um það bil 40 þúsund, með upplýsingum um 5000 þúsund Húnvetninga ásamt um 1000 þúsund húsum og stöðum í sýslunni....... nánar
Héraðsskjalavörður