24.10.2023
Á morgun þriðjudaginn 24. október verður Héraðsskjalasafnið lokað vegna kvennaverkfalls.
https://www.facebook.com/events/1980923322279458
27.9.2023
Héraðsskjalasafnið verður lokað í dag 27. september frá klukkan 14 og á morgun fimmtudaginn 28. september, vegna ráðstefnu héraðsskjalasafna á Ísafirði.
13.9.2023
Á Norðurlandi vestra er safnastarf
fjölbreytt og breiddin umtalsverð. Byggðasöfn, héraðsskjalasöfn og
bókasöfn eru starfandi fyrir allt svæðið. Í landshlutanum er einnig að
finna áhugaverð sérsöfn og margvíslega miðlun sem byggir á sögulegri,
náttúrutengdri og menningarlegri sérstöðu.
Skýrslan „Samstarf og sóknarfæri
safna á Norðurlandi vestra“ sem unnin var af Jóni Jónssyni og Eiríki
Valdimarssyni hjá Rannsóknarsetri HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu, var
unnin að beiðni SSNV og kynnt fyrir starfsmönnum og forsvarsmönnum
safna, sýninga og setra þann 16. september 2021.
Var gerð tillaga að stofnað yrði
tímabundið tilraunaverkefni á árunum 2022-2024 til að efla samstarf
safna á svæðinu með stuðningi frá Sóknaráætlun Norðurlands vestra eða
Uppbyggingarsjóði. Var þetta kynnt á fundi með SSNV og tóku forsvarsmenn
Héraðsskjalasafns Austur Húnavatnssýslu og Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi að sér að sjá um verkefnið í Austur Húnavatnssýslu árið 2023
og fengu til liðsinnis Spákonuhof á Skagaströnd. Er þetta hugsað til
þess að efla samvinnu, fólk hittist og kynnist starfsemi safnanna á
svæðinu.
Þar sem að áhugi fyrir safnaþingum
er oft ekki mikill þá var ákveðið að nálgast verkefnið frá annarri hlið
og skipuleggja skoðunarferð með leiðsögn um sýsluna. Fenginn var
langferðabíll og og hljómaði skipulögð dagskrá þannig:
Ný skýrsla um héraðsskjalasöfnin
Nýverið sendi stýrihópur héraðsskjalavarða um rafræna skjalavörslu og varðveislu frá sér skýrslu sem ber heitið Starfsemi og hlutverk héraðsskjalasafna.
Linkur á skýrsluna er hér.