Þema skjaladagsins í ár 2009 á Íslandi er „Konur og
kvenfélög“ en Félag héraðsskjalavarða ásamt Kvenfélagasambandi Íslands hefur
staðið fyrir átaki á söfnun skjala kvenfélaga um land allt. Á vef
skjaladagsins www.skjaladagur.is er
sýnishorn af þeim skjölum sem kvenfélög víða um land hafa afhent á
héraðsskjalasöfn auk ýmissa annarra skjala sem tengjast konum og
hagsmunabaráttu þeirra.
Í tilefni dagsins verður Héraðsskjalasafn Austur
Húnavatnssýslu með opið hús vikuna
23.-25.nóvember 2009 á opnunartíma safnsins sem er kl 8:00 til 15:00
mánudag til miðvikudags.