Á stjórnarfundi Félags héraðsskjalavarða var rætt að hafa fund um fjarfundarbúnað þar sem kynnt yrði vinna Borgarskjalasafns og Héraðsskjalasafns Árnesinga að skjalavistunaráætlunum leikskóla okkur hinum til innblásturs og hvatningar til dáða.
Tímasetningin var frá 10-12, miðvikudaginn 3. desember
og var fólgin í kynningu Borgarskjalasafns og Héraðsskjalasafns Árnesinga á
skjalavistunaráætlunum fyrir leikskóla.
Leikskólastjórar og fulltrúar leikskóladeilda
sveitarfélaganna voru boðaðir á fundinn af héraðsskjalaverði og þótti
hann takast með ágætum.