Miðvikudaginn 14.des. kom 7. bekkur Blönduskóla í heimsókn og fræddust
börnin um starfsemi safnsins og skoðuðu gömul gögn. Var þetta áhugasamur
hópur og með þeim komu þær Magdalena Berglind Björnsdóttir kennari og
Sigríður Ebbý Jóhannsdóttir sérkennari og umsjónarmaður bókasafns skólans.
Þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
Til baka